Miðvikudagurinn 3. mars 2021

Senuþjófurinn í sálarlífi Samfylkingar­fólks


5. júlí 2011 klukkan 07:27
Steingrímur J. Sigfússon

Af hverju hefur fjarað svo mjög undan Jóhönnu Sigurðardóttur innan Samfylkingar að það er orðin útbreidd skoðun innan flokksins að hún eigi að draga sig í hlé?

Af hverju horfa Samfylkingarmenn svo mjög til Össurar Skarphéðinssonar að hann taki við af henni?

Ástæðan er ein og hin sama: Steingrímur J. Sigfússon.

Steingrímur J. er svarti senuþjófurinn í lífi Samfylkingarfólks. Hann hefur stolið senunni af Jóhönnu. Hvort sem mönnum líkar það sem hann er að gera eða ekki lítur almenningur svo á, að Steingrímur J. sé hinn raunverulegi forystumaður ríkisstjórnarinnar. Jóhanna hefur horfið í skuggann.

Hvar er hún annars? Að fela sig fyrir forsætisráðherra Kína?!

Samfylkingarmenn treysta ekki öðrum en þaulreyndum stjórnmálamanni, sem hefur marga fjöruna sopið, til þess að ýta Steingrími J. til hliðar.

Þetta er ástæðan fyrir falli Jóhönnu og þetta er ástæðan fyrir uppgangi Össurar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS