Miðvikudagurinn 27. janúar 2021

Guðbjartur hreyfir sig-Valdaklíkan í svitabaði-horfir fram á „yztu myrkur“

Össur situr og bíður


17. júlí 2011 klukkan 08:20
mbl.is
Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðadóttir.

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, er að sögn DV byrjaður að hreyfa sig og gefa til kynna að hann sé tilbúinn til að taka við af Jóhönnu Sigurðardóttur, sem formaður Samfylkingar ef.....

Við þessu mátti búast. Valdaklíkan í kringum Jóhönnu, hin pólitíska yfirstétt, sem hefur búið um sig í skjóli hennar og notið góðs af með margvíslegum hætti, er skelfingu lostin yfir tilhugsuninni um að Össur Skarphéðinsson taki aftur við flokknum. Hún er í svitabaði. Þessi hópur þekkir sinn mann, Össur, og veit að taki hann við formennsku aftur og forsætisráðherraembætti, mun hann senda þessa klíku út í yztu myrkur.

Guðbjartur er maðurinn, sem klíkan hefur haft augastað á til að framlengja völd sín og áhrif eftir að í ljós kom að Dagur B. Eggertsson og Árni Páll Árnason reyndust léttavigtarmenn í pólitík.

Vandi valdaklíkunnar er hins vegar sá, að ráðherradómur Guðbjarts hefur leitt í ljós að hann er það líka.

Sennilega er það rétt baráttuaðferð hjá Össuri að sitja og bíða.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS