Laugardagurinn 27. febrúar 2021

Er ekki einhver þarna úti, sem getur tekið þetta fólk að sér?


21. júlí 2011 klukkan 07:51

Innan Samfylkingar er hópur fólks í leit að leiðtoga. Þetta er fólk, sem hefur lítinn áhuga á málefnum en þeim mun meiri á aðstöðu. Þetta er hópur, sem fylgdi Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að málum, þegar hún gat tryggt þeim aðstöðu. Svo yfirgaf hópurinn ISG, þegar hún var ekki lengur í aðstöðu til þess.

Þá flutti hópurinn sig yfir til Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún gat veitt þeim aðstöðu. Síðustu rúm tvö ár hefur Jóhanna verið leiðtogi lífsins fyrir þennan hóp. Nú er að fjara undan Jóhönnu og valdasól hennar að hníga til viðar.

Það þýðir að hópurinn, sem fyrst safnaðist í kringum Ingibjörgu Sólrúnu og svo í kringum Jóhönnu þarf að finna sér nýjan leiðtoga til þess að missa ekki aðstöðu sína.

Þeim líst ekki nógu vel á Guðbjart. Hafa ekki trú á að hann geti tryggt það sem hópurinn þarf á að halda.

Þarna er fólk í leit að leiðtoga.

Er ekki einhver þarna úti, sem getur tekið þetta fólk að sér?!

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS