Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Valgerður Bjarna­dóttir: Sjálfsagt að halda opna fundi í utanríkis­mála­nefnd


7. september 2011 klukkan 08:14

Valgerður Bjarnadóttir, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis upplýsir í Fréttablaðinu í dag, að það sé sjálfsagt að halda opna fundi í utanrikismálanefnd. Þetta er fagnaðarefni. Að vísu verður ekki tekin formleg ákvörðun um málið í nefndinni fyrr en í dag vegna þess, að formaður nefndarinnar, Árni Þór Sigurðsson hefur verið í útlöndum.

Það hefur margt orðið til að tefja fyrir þessari ákvörðun. Fyrst mátti ekki halda fund í nefndinni um málið vegna þess að forseti Alþingis hafði bannað fundarhöld á heilögum sumarleyfistíma alþingismanna. Svo þurfti að kanna hvort slíkir opnir fundir væru í samræmi við þingskaparlög. Þá kom í ljós að skv. þeim gat nefndin ákveðið það sjálf. Svo þurfti að athuga, hvernig ætti að standa að tæknilegri framkvæmd slíkra opinna funda. Sú athugun hefur tekið nokkrar vikur. Væntanlega er yfirlýsing varaformanns nefndarinnar nú til marks um að fundizt hefur lausn á hinni tæknilegu framkvæmd opinna funda. Nú kemur í ljós að ákvörðun um opna fundi hefur tafizt vegna utanferða formanns nefndarinnar. Vonandi kemur hann aftur til landsins!

Valgerður Bjarnadóttir setur þann fyrirvara við þessa ákvörðun að ekki verði allir fundir nefndarinnar opnir heldur ef um sérstakt tilefni sé að ræða. Engum hefur dottið í hug að allir nefndarfundir ættu að vera opnir. HIns vegar er mikilvægt að þessi fyrirvari Valgerðar verði ekki notaður of frjálslega af meirihuta nefndarinnar.

Opnir fundir utanríkismálanefndar eru mikilvægir ekki sízt til þess að almenningur á Íslandi hafi opinn aðgang að upplýsingum um það sem er að gerast í aðildarviðræðunum við ESB en þeim upplýsingum hefur verið haldið leyndum til þessa.

Einhverjir mundu segja, að stjórnarmeirihlutinn hafi, svo að notuð sé vond útlenzka verið dregin „kicking and screaming“ til þeirrar niðurstöðu að halda opna fundi í utanríkismálanefnd!

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS