Ein af þeim röksemdum, sem notaðar voru í hruninu haustið 2008 fyrir því, að Ísland ætti þegar í stað að taka upp evru var sú, að til hruns hefði ekki komið, ef við hefðum haft þann gjaldmiðil vegna þess, að þá hefðum við haft Seðlabanka Evrópu sem lánveitanda til þrautavara. Eins og lesendur kannski minnast höfðu íslenzku bankarnir safnað skuldum sem námu tífaldri vergri landsframleiðslu Íslendinga og óhugsandi að Seðlabanki Íslands gæti við þær aðstæður þjónað því hlutverki að vera lánveitandi til þrautavara.
Nú er komið í ljós að Seðlabanki Evrópu er alls ekki slíkur lánveitandi á evrusvæðinu. Í frétt hér á Evrópuvaktinni nú um þessa helgi má lesa um reiði Breta yfir því, að Angela Merkel og þýzka ríkisstjórnin neita staðfastlega að samþykkja að Seðlabanki Evrópu verði lánveitandi til þrautavara á evrusvæðinu! Cameron ætlar að fljúga til Berlínar einhverja næstu daga til að leggja að Merkel að breyta þessari afstöðu en til þessa hafa Þjóðverjar ekki tekið það í mál.
Ætli Samfylkingin viti af þessu?
Ætli stjórn Samtaka atvinnulífsins viti af þessu?
Því verður tæpast trúað, þvi að hafi þeir vitað af þessu hafa þeir byggt málflutning sinn á blekkingum.
Þetta er því miður enn eitt dæmi um það rugl, sem einkennt hefur umræður um evruna hér á Íslandi.
Evrusvæðið er hins vegar klúbbur, sem er að lokast og æskilegt að bæði Samfylkingin og Samtök atvinnulæifsins átti sig á því sem fyrst.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...