Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Koma fyrirmælin um brottrekstur Jóns Bjarnasonar frá Brussel?


30. nóvember 2011 klukkan 08:19
Jón Bjarnason og Össur Skarphéðinsson ræða saman þingsalnum.

Það verður erfið aðgerð fyrir Steingrím J. Sigfússon að reka Jón Bjarnason úr ríkisstjórn og getur orðið honum dýrkeypt eins og m.a. má sjá á auglýsingum í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag. Þar mótmæla um 150 trúnaðarmenn VG aðför Samfylkingarinnar að sjávarútvegsráðherranum og ekki ólíklegt að fleiri eigi eftir að bætast í þann hóp.

Vel má vera, að Steingrímur J. hafi meirihuta fyrir þessari aðgerð í þingflokki sínum en um hana verður áreiðanlega sagt ef til kemur, að skamma stund verður hönd höggi fegin.

Gagnrýnin á Jón Bjarnason vegna kvótamála er fyrirsláttur. Meginástæðan fyrir því að nú er reynt að losna við hann úr ríkisstjórn er sú, að hann er eini ráðherrann í ríkisstjórninni, sem tekur ekki þegjandi og hljóðalaust við því, sem frá Evrópusambandinu kemur. Það er athyglisvert, að hann einn ráðherra VG, stendur við samþykktir og yfirlýsingar flokksins í málefnum Íslands og ESB.

Ætli fyrirmælin um brottrekstur hans komi frá Brussel?

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS