Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Hreinsanir Jóhönnu og Steingríms J.: Fyrst eru þeir „brennimerktir“ svo eru þeir reknir


3. desember 2011 klukkan 11:40
mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon og Árni Páll Árnason.

Andófsmenn í Sovétríkjunum forðum daga lýstu vinnubrögðum ráðamanna í Kreml á þann veg, að þegar ákvörðun hafði verið tekin um að losna við þá með einhverjum hætti hafi þeir fyrst verið brennimerktir. Þeir lýstu því þannig, að í kringum þá hefði verið skapað „atmosphere of murder“. Þeir voru ekki drepnir eins og áður hafði tíðkazt en þegar sú aðgerð var komin í gang hættu vinir og kunningjar að tala við þá. Það ógnaði hagsmunum þeirra að láta sjá sig í návist hinna brennimerktu.

Forráðamenn núverandi ríkisstjórnar hafa tekið upp sömu vinnubrögð. Þeir „brennimerkja“ einstaka ráðherra, sem þeir ætla að losna við með því að dreifa út sögum um að nú sé komið að þeim. Slíkum sögum var dreift um Kristján Möller, fyrrv. samgönguráðherra áður en hann var settur af.

Jón Bjarnason hefur verið „brennimerktur“ oftar en einu sinni en alltaf hefur Steingrimur J. gefizt upp á fyrirætlunum um að reka hann. Nú hefur Jón Bjarnason verið „brennimerktur“ einu sinni enn. Því lengri tími, sem líður frá því að brennimerkingin fór fram, þeim mun erfiðara verður fyrir Steingrím J. að framkvæma verknaðinn.

Nú hefur Árni Páll Árnason verið „brennimerktur“. Það hefur verið gert með því að dreifa út sögum um að ráðaherratími hans sé á enda. Það væri fróðlegt að vita, hvort Árni Páll er nú þegar farinn að finna fyrir því að þeir, sem hafa ræktað hagsmunavináttu við hann séu að hverfa á braut!

Hitt er forvitnilegt að athuga hverjir það eru, sem Jóhanna losar sig við. Þeir Kristján Möller og Árni Páll hafa orðið þeir ráðherrar Samfylkingar, sem hafa náð mestu jarðsambandi við veruleikann í þjóðlífinu og þá ekki sízt atvinnulífinu.

Eru þeir reknir þess vegna?

Hvað segir „hægri armur“ Samfylkingar? Lætur hann fara svona með sig?

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS