Miðvikudagurinn 24. febrúar 2021

Rifrildi stjórnar­flokkanna sín í milli og innbyrðis er ömurlegt og leiðinlegt


5. desember 2011 klukkan 07:45
Eyjan.is
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon

Skelfing er orðið leiðinlegt að fylgjast með endalausu rifrildi stjórnarflokkanna um hvað sem er, stórt og smátt. Samfylkingin virðist vera óvenju illa haldin eftir ákvörðun Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, í Grímsstaðamálinu og nú sýnist það orðið eitt helzta stefnumál flokksins að fá Huang Nubo til að fjárfesta hér á landi. Er það til að sýna Ögmundi í tvo heimana?

Jóhanna Sigurðardóttir hefur hafið neðanjarðar hernað gegn einum ráðherra sinna, Árna Páli Árnasyni og miðað við fréttir Morgunblaðsins um helgina, sem augljóslega byggjast á heimildum innan úr Samfylkingunni er það orðið kappsmál fyrir Steingrim J. að sýna Ólafi Ragnari Grímssyni í tvo heimana í Icesave-málinu.

Þeir sem til þekkja vita mæta vel, að innanhússtríð af þessu tagi tekur mikinn tíma og orku. Á meðan á því stendur verður lítill tími eftir til að fjalla um alvörumál.

Fólk er orðið hundleitt á þessu.

Þeir sem telja, að stjórnmál eigi að snúast um svona vitleysu eiga að fá frið til þess að stunda slík stjórnmál - eru þetta samræðustjórnmál?- en þeir verða þá að láta aðra um að stjórna landinu.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS