Arnar Sigurmundsson, stjórnarformaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir í samtali við RÚV, að það sé „ekki einfalt mál“ að breyta fyrirkomulagi á vali fólks í stjórn lífeyrissjóða. Það sé „ekki tilefni til breytinga að svo stöddu“. Arnar segir ennfremur að oft sé samið um breytingar í lífeyrismálum í kjarasamningum og þá mundi sú ábyrgð færast til.
Eru þetta efnisleg rök gegn því fyrirkomulagi að félagsmenn í lífeyrissjóðunum taki sjálfir ákvörðun um hverjir stjórni þeim?
Varla.
Umræður um beina kosningu á meðal félagsmanna lífeyrissjóða til stjórna þeirra hafa áður komið upp og verið illa tekið af forráðamönnum sjóðanna hverju sinni.
Þetta er misskilin afstaða hjá þeim.
Með sama hætti og eigendur fyrirtækja kjósa í stjórnir þeirra er eðlilegt að eigendur lífeyrissjóða kjósi í stjórnir þeirra.
Það væri æskilegt að stjórnendur samtaka lífeyrissjóða endurskoði afstöðu sína til þessa máls og að víðtæk samstaða náist um það bæði á Aþingi og í þjóðfélaginu.
Það standa engin rök til annars.
Lýðræði er mjög einfalt í framkvæmd.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...