Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Lítið starfsöryggi og skert orðspor


16. janúar 2012 klukkan 09:43
Reykholt
Stjórnarráðið

Stjórnarflokkarir núverandi gerðu athyglisverða tilraun í byrjun með því að taka inn í ríkisstjórn tvo ráðherra, sem ekki töldust flokkspólitískir. Markmiðið var augljóslega að auka traust á ríkisstjórninni í upphafi.

Þessir tveir ópólitísku ráðherrar, ef svo má að orði komast voru svo settir af óvænt og án aðdraganda að ráði, þegar það hentaði stjórnarflokkunum ekki lengur að nýta sér starfskrafta þeirra. Hið sama virðist nú vera að gerast í bæjarstjórn Kópavogs með fyrirhuguðum breytingum í stól bæjarstjóra.

Nú er starfsöryggi í stjórnmálum lítið eðli málsins samkvæmt. En eitt er lítið starfsöryggi og annað ef fólk fer frá slíkum störfum með skert orðspor vegna þess hvernig staðið er að breytingum.

Hér hefur það ítrekað verið gert á þann veg, að það hlýtur að draga mjög úr áhuga þeirra, sem koma úr öðrum áttum að taka slík störf að sér á vegum flokkanna.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS