Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Ólafur Ragnar sendiherra í Nýja Norðrinu?


19. janúar 2012 klukkan 09:55
Forsetaskrifstofan
Ólafur Ragnar Grímsson við hlið styttu af Jóni Sigurðssyni.

Danir hafa skipað nýjan sendiherra, sem verður sendiherra fyrir norðurskautssvæðin. Hann heitir Klaus A. Holm. Frá þessu segir BarentsObserver. Þessi skipan sýnir hve mikla áherzlu Danir leggja nú á að gæta hagsmuna sinna á þessu svæði.

Ísland hefur á að skipa fjölmörgum sendiherrum og að margra mati of mörgum. Þótt einstakir sendiherrar hafi haft með höndum málefni norðurslóða hefur þó enginn þeirra verið skipaður sérstaklega fyrir þetta svæði, eins og Danir gera nú. Eiga Íslendingar þó mikilla hagsmuna að gæta.

Í áramótaávarpi sínu lýsti Ólafur Ragnar Grímsson áhuga á að geta sinnt hugðarefnum sínum betur i framtíðinni en hann gæti gert sem forseti.

Fáir kjörnir trúnaðarmenn þjóðarinnar hafa lagt jafn mikla áherzlu á að kynna Nýja Norðrið og hagsmuni Íslands þar eins og forsetinn hefur gert.

Spurning er, hvort Íslendingar eigi að fylgja í fótspor Dana og skipa sérstakan sendiherra fyrir norðurslóðir.

Ólafur Ragnar Grímsson væri vel til þess fallinn að gegna slíku embætti eftir að hann lætur af störfum, sem forseti Íslands.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS