Laugardagurinn 7. desember 2019

35 milljarðar í launahækkanir-hvaðan koma peningarnir?


31. janúar 2012 klukkan 08:50

Morgunblaðið segir frá því í dag, að 3,5% launahækkun á almennum vinnumarkaði nú um mánaðamótin og sambærileg hækkun hjá ríki og sveitarfélögum 1. marz n.k. muni með öllum launatengdum gjöldum kosta 35 milljarða króna á ársgrundvelli.

Hvaða ætli þeir peningar komi?

Einkafyrirtæki mæta þessum kostnaðarauka annað hvort með verðhækkunum eða fækkun starfsmanna. Skýrt dæmi um það er uppsögn 10 starfsmanna 365 miðla nú í framhaldi af öðrum uppsögnum fyrir skömmu. Augljóst er að fjölmiðlar 365 geta ekki hækkað auglýsingaverð. Önnur fyrirtæki svo sem matvöruverzlanir mæta þessum hækkunum með því að hækka vöruverð, sem er aðferð við að sækja þessar launahækkanir í vasa almennings.

Ríki og sveitarfélög mæta sínum hækkunum með skattahækkunum eða hækkunum þjónustugjalda á einn eða annan veg.

Þetta er niðurstaðan af kjarasamningum, sem gerðir voru á síðasta ári.

Þetta var algerlega fyrirsjáanleg niðurstaða og þýðir ekkert fyrir hvorki vinnuveitendur né verkalýðsleiðtoga að halda öðru fram. Hið sama er að segja um stjórnmálamennina.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS