Fréttir sjónvarps RÚV nú kl. 12.00 á mánudegi af réttarhöldum fyrir landsdómi yfir Geir H. Haarde sýna, að það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á að fylgjast með þessum réttarhöldum í gegnum fréttamenn sem milliliði. Og það er heldur ekki hægt að bjóða sakborningi upp á, að málflutningi hans sé miðlað áfram með þeim hætti sem gert var í fréttaútsendingu sjónvarps.
Í þessari skoðun er ekki fólgin nein ásökun á hendur fréttamönnum heldur er um svo flókin mál að ræða að það er ekki við því að búast að hægt sé að koma upplýsingum, sjónarmiðum og skoðunum sem fram koma, til almennings með skilmerkilegum hætti og á svo skömmum tíma, sem fréttamönnum er ætlaður milli fréttatíma ljósvakamiðlanna og á netmiðlum.
Þetta er algerlega óviðunandi og full ástæða til að krefjast þess að frá og með morgundegi verði þessum réttarhöldum útvarpað og sjónvarpað í beinni útsendingu enda engin efnisleg rök sem mæla gegn því.
Allt annað er óvirðing bæði við sakborning og fólkið í landinu.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...