Miðvikudagurinn 22. maí 2013

Landsdómur: Eru Jóhanna og Össur „hlut­deildarmenn“?


9. mars 2012 klukkan 10:35
mbl.is
Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðadóttir.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra koma fyrir Landsdóm í dag. Í tilefni af vitnisburði þeirra er rétt að minna á eftirfarandi ummæli í skýrslu vinnuhóps forsætisnefndar Alþingis frá því í október 2009. Þar segir:

„Sumar ákvarðanir heyra þó undir ríkisstjórnina alla í sameiningu. Á slíkum ákvörðunum bera ráðherra allir sameiginlega ábyrgð, þótt aðeins einn ráðherra undirriti hana. Þótt ákvörðunarvald sé í höndum eins ráðherra geta samráðherrar hans átt hlut í athöfnum hans. Þeir geta því gerzt samsekir í brotum hans, t.d. með því að hvetja til þeirra eða stuðla að þeim með öðrum hætti. Það geta því fleiri en einn ráðherra átt saman hlut að brotum, sem ráðherraábyrgðalögin taka til, ýmist sem aðalmenn eða hlutdeildarmenn.“

Það væri fróðlegt að fá umsögn þessara tveggja ráðherra um þetta sjónarmið vinnuhóps Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis.

Jóhanna og Össur áttu sæti í ríkisstjórn Geirs H. Haarde frá vori 2007 fram til 1. febrúar 2009.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnar­flokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?

Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkis­stjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnar­flokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.

Hin „strategíska“ spurning sem VG stendur frammi fyrir

Nú blasa endalokin við fyrstu hreinu og ómenguðu vinstri stjórn lýðveldistímans. Og vafalaust velta sumir ráðherranna því fyrir sér, þegar þeir yfirgefa ráðuneyti sínu öðru hvoru megin við næstu helgi, hvort þeir eigi einhvern tímann afturkvæmt. Það er kannski stærri spurning en stundum áður, þegar ráðherrar hafa yfirgefið ráðuneyti.

Þau fengu tækifæri og klúðruðu því

Stjórnar­myndunin, sem væntanlega verður kynnt innan örfárra sólarhringa mun hleypa nýjum krafti í Framsóknar­flokk og Sjálfstæðis­flokk og auka bjartsýni í báðum flokkum um framtíðina og reyndar má finna að það á við um fólk almennt.

Hvar og hvenær missti framkvæmda­stjórn ESB jarð­sambandið?

Sendi­nefnd Evrópu­sambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávar­útvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS