
Á vef RÚV er eftirfarandi haft eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra fyrir Landsdómi í dag, föstudag, 9. marz:
„Jóhanna sagði að þingmenn og ráðherrar hafi reitt sig á skrif í Fjármálatíðindum Seðlabankans um að staða bankanna væri í lagi.“
Þetta er afar upplýsandi yfirlýsing hjá forsætisráðherra.
Útgáfa Fjármálatíðinda hófst hjá Seðlabankanum árið 1954. Seinni árin alla vega kom tímaritið út tvisvar á ári, svo að hætta er á að upplýsingar í því hafi verið orðnar nokkuð gamlar en....
.....Fjármálatíðindi hættu að koma út á árinu 2007. Þá kom út eitt tölublað.
Var Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra með það í höndunum allt árið 2008 og byggði á því?!
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart ESB?
Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þingflokkur VG styðji núverandi ríkisstjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.
Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar
Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...
Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir
Forsvarsmenn Evrópusambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikisstjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku samfélagi.
Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnarflokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?
Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnarflokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.