Forystumenn vinstri stjórnarinnar eru ótrúlegir „eymingjar“. Þeir láta bjóða sér hvað sem er. Þingmenn á Evrópuþinginu hafa uppi hótanir um að setja löndunarbann á allan íslenzkan fisk í öllum ESB-ríkjum en þingmenn stjórnarflokkanna sitja þegjandi undir slíkum hótunum. Það var Ragnheiður Elín Árnadóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sem bjargaði sóma Íslands á þingmannafundi fyrir skömmu og lýsti þeirri skoðun, að hótunin ein gæfi tilefni til að slíta aðildarviðræðunum.
Nú gengur Evrópusambandið enn lengra. Nú hefur sjálf framkvæmdastjórn þess ákveðið að gerast aðili að málaferlum á hendur Íslandi vegna Icesave-málsins. Framkvæmdastjórnin ætlar sem sagt að taka þátt í því að segja að íslenzkir skattgreiðendur hafi borið ábyrgð á skuldbindingum einkafyrirtækja, sem komu almenningi á Íslandi ekkert við.
Þessi gerð framkvæmdastjórnarinnar ein og sér er svo fjandsamleg í garð Ísendinga, að þegar í stað ætti að tilkynna viðræðuslit af okkar hálfu.
Þá kemur utanríkisráðherrann, Össur Skarphéðinsson, og segir að slíkt mundi lýsa vantrú Íslendinga á eigin röksemdir!
Hvað á ráðherrann við?
Skilur Össur ekki að viðsemjandi hans er að reyna að kúga okkur og niðurlægja eins og hann getur?
Hvernig er hægt að halda áfram að tala við slíkt fólk?
Hvað ætli Wen segi um þetta þegar hann kemur í heimsókn?!
Er það ekki sérfag Kínverja að standa með lítilmagnanum í heiminum?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...