Föstudagurinn 15. janúar 2021

Er einhver að fara á taugum SteingrímurJ.?


17. apríl 2012 klukkan 10:11
Steingrímur J. Sigfússon

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir að menn þurfi ekki að rjúka upp til handa og fóta vegna aðildar framkvæmdastjórnar ESB að Icesave-málinu.

Er einhver að því?

Steingrímur J. segir að nú skipti máli að fara ekki á taugum.

Er einhver að því?

Formaður VG virðist ekki átta sig á því hvað um er að vera.

Í sjávarútvegsnefnd Evrópuþingsins er nú rætt um það, hvort ESB setji löndunarbann á Ísland vegna makrílveiða. Við þekkjum slík vinnubrögð fá fyrri tíð. Umræðurnar sem slíkar eru hótun í okkar garð.

Framkvæmdastjórn ESB er gengin í lið með Bretum og Hollendingum vegna Icesave-deilunnar. Um hvað snerist hún? Hún snerist um það hvort íslenzka ríkið, þ.e. skattgreiðendur, ættu að taka ábyrgð á skuldum einkafyrirtækja. Íslendingar sögðu nei.

Þegar írskir bankar voru að falla haustið 2008 fyrirskipaði framkvæmdastjórn ESB írsku ríkisstjórninni að lýsa yfir ábyrgð á skuldum bankanna. Það gerðu Írar. Þess vegna eru þeir í vandræðum nú.

Spænskir bankar eru komnir að fótum fram. Financial Times ráðleggur Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar sérstaklega að lýsa því yfir að spænska ríkið muni ekki draga þá að landi.

Aðild framkvæmdastjórnar ESB að málarekstri gegn okkur vegna Icesave er fjandsamleg aðgerð.

Annars vegar stöndum við frammi fyrir hótunum um löndunarbann, hins vegar stöndum við frammi fyrir fjandskap af hálfu framkvæmdastjórnar ESB.

Við slíkar aðstæður er ekki hægt að halda áfram aðildarviðræðum. Þetta snýst ekki um að fara á taugum eða rjúka upp til handa og fóta.

Þetta snýst um eðlileg viðbrögð við óvinsamlegri framkomu í okkar garð.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS