Laugardagurinn 18. maí 2013

Og enn lofar Jóhanna nýjum störfum!!


19. maí 2012 klukkan 09:30
mbl/Kristinn
Vinkonur?

Atvinnuvandamálum Íslendinga hefur enn einu sinni verið bjargað. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra hefur gefið nýja yfirlýsingum um fjölgun starfa á næstu árum. Að vísu ber fjölmiðlum ekki saman um hve mörgum störfum hún lofaði í gær. Af fréttum RÚV mátti skilja að um 10 þúsund störf væri að ræða. Fréttablaðið talar í morgun um 4000 störf en Morgunblaðið segir að hún hafi lofað 11 þúsund störfum.

Það skiptir svo sem ekki máli.

Hver var síðasta talan, sem var boðuð úr ræðustól Alþingis?

Voru það ekki 12 þúsund störf?

Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingar, sagði í Kastljósi í gærkvöldi, að þessi störf mundu verða til í „græna hagkerfnu“ og með „skapandi störfum“.

Hvað er „græna hagkerfið“? Er það að koma í veg fyrir uppbyggingu orkufreks iðnaðar?

Það er að vísu mikið um skapandi störf. En þeir, sem sinna þeim ganga á milli stofnana og fyrirtækja og leita eftir fé og koma alls staðar að lokuðum dyrum.

Forsetinn leikur sér með Bessastaði.

Jóhanna og Dagur leika sér með tilfinningar atvinnulauss fólks.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðum

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnar­myndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.

Stjórnar­myndun langt komin - og ekkert fréttist!

Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnar­myndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í sam­félagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.

Opinber greinargerð um stöðu ríkisfjármála á að verða fyrsta verk nýs fjármála­ráðherra

Í kjölfar háværra mótmæla fráfarandi ráðherra Samfylkingar um að þeir hafi engu leynt um stöðu ríkisfjármála er nauðsynlegt að eitt af fyrstu verkum nýs fjármála­ráðherra verði að upplýsa þjóðina um hina raunverulegu stöðu.

Fylgdust fráfarandi ráðherrar ekki nógu vel með?

Fráfarandi ráðherrar ættu að fara varlega í að saka verðandi ráðherra um vandræðagang og að fylgjast ekki með í þeim umræðum, sem nú eru hafnar um stöðu ríkisfjármála. Það er fleira fólk, sem vinnur í ráðuneytum en ráðherrarnir einir og það fólk veit mæta vel hvað þar fer fram innan dyra og fylgist með umræðum út í sam­félaginu.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS