Föstudagurinn 24. maí 2013

Samfylking: Árni Páll er orðinn leiðtogi andstöðunnar við Jóhönnu


28. maí 2012 klukkan 09:56
Árni Páll Árnason

Því lengur sem Jóhanna Sigurðardóttir situr í embætti formanns Samfylkingar og forsætisráðherra, þeim mun færri af núverandi þingmönnumn Samfylkingar eiga afturkvæmt á þing.

Þingmönnunum er þetta ljóst.

Þess vegna er það svo að þótt þeir sýni enn samstöðu út á við er allt á hvolfi inn á við.

Kröfur um að Jóhanna hætti strax verða stöðugt háværari.

Árni Páll Árnason er orðinn leiðtogi andstöðunnar við Jóhönnu innan Samfylkingarinnar. Viðbrögðin eru þau að stuðningsmenn Jóhönnu tala illa um Árna Pál. Það illa umtal styrkir stöðu hans, þegar hér er komið sögu.

Eina von stuðningsmanna Jóhönnu er að láta til skarar skríða sem fyrst, fá formanninn til að lýsa því yfir fyrir sumarið, að hún gefi ekki kost á sér á ný og koma sér saman um frambjóðanda til að takast á við Árna Pál á landsfundi í haust.

Eina von Samfylkingar um að komast hjá afhroði í þingkosningum næsta vor er að nýr formaður taki við forsætisráðherraembætti í haust.

Allt þetta er Samfylkingarmönnum ljóst. Þess vegna er allt á öðrum endanum í þeirra herbúðum innan dyra þótt þeim takist enn að sýna samstöðu út á við.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar

Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðar­dóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...

Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir

Forsvarsmenn Evrópu­sambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikis­stjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku sam­félagi.

Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnar­flokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?

Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkis­stjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnar­flokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.

Hin „strategíska“ spurning sem VG stendur frammi fyrir

Nú blasa endalokin við fyrstu hreinu og ómenguðu vinstri stjórn lýðveldistímans. Og vafalaust velta sumir ráðherranna því fyrir sér, þegar þeir yfirgefa ráðuneyti sínu öðru hvoru megin við næstu helgi, hvort þeir eigi einhvern tímann afturkvæmt. Það er kannski stærri spurning en stundum áður, þegar ráðherrar hafa yfirgefið ráðuneyti.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS