Mánudagurinn 20. maí 2013

Er meirihluti í þinginu?-Hvaða meirihluti er það?


19. júní 2012 klukkan 10:09
Samfylking
Jóhanna Sigurðardóttir á landsfundi Samfylkingarinnar 21. október 2011.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að sögn RÚV að það mundi ríkja meira traust á milli stjórnar og stjórnarandstöðu, ef stjórnarandstaðan tæki tillit til þess að það sé meirihluti í þinginu.

Er það?

Er meirihluti í þinginu?

Hver er sá meirihluti?

Er Jón Bjarnason, stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar á öllum sviðum?

Er ekki rétt munað að það hafi skapazt nýr meirihluti í utanríkismálanefnd fyrir skömmu?

Hver ætli beri mesta ábyrgð á því að ríkisstjórnin á ekki vísan meirihluta á Alþingi, þegar hér er komið sögu?

Jóhanna ætti að horfast í augu við sjálfa sig.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Hvar og hvenær missti framkvæmda­stjórn ESB jarð­sambandið?

Sendi­nefnd Evrópu­sambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávar­útvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðum

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnar­myndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.

Stjórnar­myndun langt komin - og ekkert fréttist!

Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnar­myndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í sam­félagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.

Opinber greinargerð um stöðu ríkisfjármála á að verða fyrsta verk nýs fjármála­ráðherra

Í kjölfar háværra mótmæla fráfarandi ráðherra Samfylkingar um að þeir hafi engu leynt um stöðu ríkisfjármála er nauðsynlegt að eitt af fyrstu verkum nýs fjármála­ráðherra verði að upplýsa þjóðina um hina raunverulegu stöðu.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS