Sunnudagurinn 19. maí 2013

Hvenær tilkynnir Jóhanna um framtíðaráform sín?


3. júlí 2012 klukkan 10:52
Morgunblaðið
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG, ræða stöðu þingmála að kvöldi föstudags 15. júní 2012.

Á næstu mánuðum verða þrjú má efst á dagskrá í pólitíkinni, ESB-málið, þ.e. með hvaða hætti á að ljúka aðlögunarferlinu, stjórnarskrármálið, þ.e. að finna leið til að hraða endurskoðun stjórnarskrár m.a. til að taka af öll tvímæli um stöðu og hlutverk forseta Íslands og leiðtogaskipti í Samfylkingunni.

Gera má ráð fyrir að veruleg hreyfing komist á umræður innan Samfylkingarinnar í sumar um eftirmann Jóhönnu Sigurðardóttur og þrýstingur á hana mun fara vaxandi um að taka af skarið í haust og tilkynna, að hún hyggist ekki gefa kost á sér til endurkjörs.

Hins vegar má búast við að Jóhanna vilji sitja í embætti forsætisráðherra fram til næstu þingkosninga. Um það verður áreiðanlega ágreiningur innan flokksins af þeirri einföldu ástæðu, að það yrði mjög erfitt fyrir nýkjörinn formann, sem kosinn yrði annað hvort í haust eða í síðasta lagi í janúar að hafa forystu í kosningabaráttu á meðan Jóhanna sæti í stjórnarráðinu.

Ganga má út frá því sem vísu, að um þetta verði miklar deilur innan Samfylkingar.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Hvar og hvenær missti framkvæmda­stjórn ESB jarð­sambandið?

Sendi­nefnd Evrópu­sambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávar­útvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðum

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnar­myndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.

Stjórnar­myndun langt komin - og ekkert fréttist!

Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnar­myndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í sam­félagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.

Opinber greinargerð um stöðu ríkisfjármála á að verða fyrsta verk nýs fjármála­ráðherra

Í kjölfar háværra mótmæla fráfarandi ráðherra Samfylkingar um að þeir hafi engu leynt um stöðu ríkisfjármála er nauðsynlegt að eitt af fyrstu verkum nýs fjármála­ráðherra verði að upplýsa þjóðina um hina raunverulegu stöðu.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS