
Að liðnu sumri hefst undirbúningur prófkjöra hjá flokkunum, sem vafalaust fara að einhverju leyti fram fyrir áramót en önnur snemma á nýju ári. Í prófkjörunum eru það hinir almennu flokksmenn, sem ráða ferðinni og forystumenn flokkanna geta lítil áhrif haft á þeirra ákvarðanir. Þó er ljóst að mikið er í húfi fyrir flokkana. Með réttu eða röngu eru sumir þingmenn meira tengdir við hrunárin í hugum almennings en aðrir. Hvort þeir ná endurkjöri í prófkjörum er á valdi flokksmanna, sem taka þátt í þeim en sú ákvörðun getur hins vegar haft mikil áhrif á niðurstöður kosninganna.
Þótt forystumenn flokka geti ekki haft áhrif á afstöðu kjósenda (og vija áreiðanlega ekki blanda sér í þau mál) geta þeir þó haft áhrif á það hvaða val kjósendur eiga.
Það geta þeir með því að ýta undir að eftirsóknarverðir einstaklingar fari í framboð í prófkjörunum. Að vísu er ábyrgðarhluti að hvetja fólk til þátttöku í stjórnmálum vegna þess sem því fylgir en engu að síður skiptir miklu máli fyrir flokkana hverjir skipa framboðslista þeirra.
Það verður forvitnilegt að fylgjast með því, hvort forystumenn flokkanna beita sér með þessum hætti fyrir því, að kjósendur eigi raunverulegt val.
Hafa flokkarnir upp á eitthvað nýtt að bjóða?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Hvar og hvenær missti framkvæmdastjórn ESB jarðsambandið?
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávarútvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðum
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnarmyndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.
Stjórnarmyndun langt komin - og ekkert fréttist!
Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnarmyndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í samfélagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.
Opinber greinargerð um stöðu ríkisfjármála á að verða fyrsta verk nýs fjármálaráðherra
Í kjölfar háværra mótmæla fráfarandi ráðherra Samfylkingar um að þeir hafi engu leynt um stöðu ríkisfjármála er nauðsynlegt að eitt af fyrstu verkum nýs fjármálaráðherra verði að upplýsa þjóðina um hina raunverulegu stöðu.