
Sú var tíðin að leppstjórnir Sovétríkjanna í ríkjum Austur-Evrópu voru daglegt fréttaefni og fór ekki á milli mála hvaða merking var fólgin í því orði.
Í grein í Fréttablaðinu í dag kemst Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins að kjarna málsins í umfjöllun um Grímsstaði á Fjöllum. Hann segir:
„Næsti leikur er að sveitarfélögin kaupi jörðina og leigi Kínverjanum. Hann greiðir leiguna fyrirfram. Sveitarstjórnir á svæðinu ætla einfaldlega að leppa kaupin til að skapa atvinnu. Þær eru leppsveitarstjórnir“.
Segir þetta eina orð „leppsveitarstjórnir“ ekki allt sem segja þarf?
(PS: Einn af lesendum Evrópuvaktarinnar spyr hvort um sé að ræða „lopaleppa“)
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Þau fengu tækifæri og klúðruðu því
Stjórnarmyndunin, sem væntanlega verður kynnt innan örfárra sólarhringa mun hleypa nýjum krafti í Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk og auka bjartsýni í báðum flokkum um framtíðina og reyndar má finna að það á við um fólk almennt.
Hvar og hvenær missti framkvæmdastjórn ESB jarðsambandið?
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávarútvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðum
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnarmyndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.
Stjórnarmyndun langt komin - og ekkert fréttist!
Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnarmyndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í samfélagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.