Stuðningsmenn Mitts Romneys, forsetaframbjóðanda repúblíkana, í Bandaríkjunum snerust til varnar sínum manni eftir að bresku blöðin sóttu að honum í vikunni í tilefni af komu hans til London. Á vefsíðu tímaritsins Commentary segir föstudaginn 27. júlí að breskir fjölmiðlamenn hafi ekki getað beðið með rýtinga sína þar til Romney kæmi til London, þeir hafi vegið að honum vegna ummæla hans um undirbúninginn vegna Ólympíuleikanna og vegna annarra orða hans af undarlega mikilli hörku. Piers Morgan varði Romney á CNN : „Hann var ekki að segja annað en sannleikann [um Ólympíuleikana], það er stundum erfitt að kyngja honum.“ Hann sagði á vefsíðunni Hot Air:
Spurningin er ekki hvort ummæli Romneys voru rétt heldur hvort þau voru við hæfi. Bretar töldu svo ekki vera og það ræður í málinu. Stuðningsmenn Obama elska þetta þar sem það fellur alveg að slagorði þeirra: „Romney er Bush“. Kjósendur vilja ekki að Bandaríkin séu fyrirlitin í Evrópu eins og á árum G.W – er það? Gleymum þeirri staðreynd að Obama hefur staðið að öllu alvarlegri móðgunum: fjarlægt brjóstmynd af Churchill úr skrifstofu sinni, gefið drottningunni iPod fullhlaðinn af myndum af forsetafjölskyldunni o. s. frv. Hann er hins vegar enn vinstrisinnaður demókrati og nýtur þess vegna dálítils skjóls hjá bresku pressunni.
Fjölmiðlar eru teknir til við að kalla ferðalag Romneys „Romneyshambles“ – hrakfallaför Romneys – og nú spinna þeir sögur úr engu. Fíflalegasta athugasemdin birtist í The Independent og snerist um að Romney hefði gleymt nafninu á Ed Miliband, leiðtoga Verkamannaflokksins; hann virtust hafa gert það á blaðamannafundi.
Þegar Romney ræddi við leiðtoga bresku stjórnarandstöðunnar sagði hann: „Hr. leiðtogi, ég hlakka til að ræða við þig hér á eftir [...] og auðvitað viðurkenna hin sérstöku tengsl milli þjóða okkar, stuðning okkar við sameiginleg gildi, stuðning okkar við frið í heiminum og ósk okkar um sterkari og vaxandi efnahag.“
Margir Bandaríkjamenn vita er „Mr. Leader“ – hr. leiðtogi – virðingarheiti á þingflokksformönnum á Bandaríkjaþingi.. Flest bendir til að Romney hafi frekar notað þetta ávarp í virðingarskyni en að hann hafi gleymt nafni Milibands. Skrif breskra fjölmiðla um þetta eru aðeins til marks um hve mjög þau þrá að „ná í skottið“ á Romney og þetta veldur repúblíkönum vandræðum. Þess má minnast að Bush átti að vera heimskur kúreki sem mundi engin mannanöfn: Romney á að vera peningaþyrst vélmenni sem kann ekkert fyrir sér í utanríkismálum. Nauðsynlegt er að hafa þetta á hreinu segir í Commentary.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Þau fengu tækifæri og klúðruðu því
Stjórnarmyndunin, sem væntanlega verður kynnt innan örfárra sólarhringa mun hleypa nýjum krafti í Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk og auka bjartsýni í báðum flokkum um framtíðina og reyndar má finna að það á við um fólk almennt.
Hvar og hvenær missti framkvæmdastjórn ESB jarðsambandið?
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávarútvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðum
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnarmyndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.
Stjórnarmyndun langt komin - og ekkert fréttist!
Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnarmyndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í samfélagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.