
Það kemur óneitanlega á óvart hversu dauft er yfir hinum nýju framboðum, sem boðað hafa komu sína inn á hinn pólitíska vettvang. Hver getur ástæðan verið? Ætla mætti að nú væru kjöraðstæður fyrir slík framboð í kjölfar Hrunsins.
Getur verið að ástæðan sé sú að þau hafi lítið sem ekkert að segja?
Í sumum tilvikum kan það að vera. Þó á það ekki við um Lilju Mósesdóttur, sem talar af mikilli skynsemi um þjóðmál.
Hafa þessi framboð einhvern möguleika á að ná sér á strik?
Það gæti verið.
Líklegasta leið þeirra til þess er að ná samstarfi við einhverja þá, sem buðu sig fram til forseta í vor. Þar er á ferð fólk, sem hefur „náð í gegn“ ef svo má að orði komast. Þóra Arnórsdóttir hefur að vísu nánast tekið af skarið um að hún ætli sér ekki afskipti af pólitík en á þó augljóslega erindi inn á þann vettvang.
Bæði Andrea Jóhanna Ólafsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir hafa ýmislegt að segja. Þær tala af sannfæringu um það, sem þeim liggur á hjarta. Svo er það annað má hvaða skoðun fólk hefur á sjónarmiðum þeirra. En það skiptir máli að fólk, sem býður sig fram til forystu hafi skoðanir og sannfæringu.
Hið sama á við um Ara Trausta og Hannes Bjarnason. Þeir hafa margt fram að færa.
Ef eitthvað af þessu fólki gengi til samstarfs við hina hefðbundnu flokka eða hin nýju framboð gæti það verkað sem ákveðin vítamínssprauta fyrir pólitíkina.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Hvert er hlutverk Samfylkingar?-Er hún á sömu leið og PASOK í Grikklandi?
Í fréttum Evrópuvaktarinnar í dag kemur fram, að fyrrverandi menntamálaráherra PASOK (flokks sósíalista) Anna Diamantopoulo hyggist segja sig úr flokknum. Hún segir að það sé engin ástæða lengur fyrir því að PASOK lifi.
Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart ESB?
Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þingflokkur VG styðji núverandi ríkisstjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.
Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar
Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...
Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir
Forsvarsmenn Evrópusambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikisstjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku samfélagi.