Augljóst er af fjölmiðlum á meginlandi Evrópu að þeir sem í þá skrifa um ESB og Ísland eru sannfærðir um að Íslendingar gerist ekki aðilar að Evrópusambandinu og viðræðurnar sem nú fara fram leiði ekki til neinnar niðurstöðu. Sú ályktun er til dæmis dregin af forsetaskosningunum 30. júní 2012 að 85% kjósenda hafi stutt frambjóðendur sem vilji ekki aðild að Evrópusambandinu.
Þegar erlendir fréttamenn koma til landsins um þessar mundir hitta þeir aðeins einn mann sem enn er sannfærður um að Íslendingar gerist aðilar að ESB, það er Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Hann á að gæta hagsmuna þjóðarinnar gagnvart ESB í viðræðunum en tekur þó jafnframt alltaf málstað ESB í viðtölum við útlendinga. „Hagsmunagæsla“ Össurar snýst um að fegra fyrir Íslendingum allt sem aflaga fer innan ESB og sérstaklega á evru-svæðinu.
Öll afstaða þeirra sem standa að viðræðunum fyrir Össur mótast af þessu sama hugarfari: að allt sem gerist innan ESB beri að skýra á þann veg að það sé jákvætt fyrir Íslendinga. Það er engin furða þótt erlendir fjölmiðlamenn verði undrandi við lofsönginn um ESB í utanríkisráðuneytinu við Rauðarárstíg. Slíkur söngur heyrist ekki almennt meðal neinna stjórnmálamanna innan ESB. Þeir hafa fengið sig fullsadda af vandræðum vegna aðildarinnar.
Nýjasta dæmið um óskhyggju Össurar Skarphéðinssonar birtist 30. júlí á sjónvarpsstöðinni France24. Þar talaði hann enn um að til yrði ný evra og af henni myndu Íslendingar heillast þótt sú gamla fældi þá nú frá ESB.
Með reynslu Grikkja, Íra og Portúgala í huga hefur líklega einhverjum áhorfanda stöðvarinnar brugðið þegar hann heyrði Össur segja að Íslendingar hefðu sloppið betur frá bankahruni með evru en án hennar. Össur hefur ekkert fyrir sér um þetta annað en eigin ímyndun. Það er almennt mat sérfróðra manna sem hafa kynnt sér aðgerðir íslenskra stjórnvalda í október 2008 að þær hafi verið miklu skynsamlegri og árangursríkari en gripið hefur verið til í evru-ríkjum þar sem bankar hafa hrunið. Þar máttu ríkisstjórnir einfaldlega ekki feta í fótspor ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Þjóðirnar sitja uppi með vanda sem er miklu erfiðari viðfangs en sá sem steðjar að okkur Íslendingum.
Málflutningur Össurar Skarphéðinssonar á engan hljómgrunn á Íslandi. Þeir sem búa í evru-ríkjum og hlusta á hana tala um evruna og evru-ríki í vanda átta sig strax á því hvers vegna stuðningur Íslendinga við evru-aðild minnkar jafnt og þétt undir pólitískri forystu Össurar: Það er ekki orð að marka af því sem hann segir þegar ESB á í hlut.
Bj. Bj.
Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Hin „strategíska“ spurning sem VG stendur frammi fyrir
Nú blasa endalokin við fyrstu hreinu og ómenguðu vinstri stjórn lýðveldistímans. Og vafalaust velta sumir ráðherranna því fyrir sér, þegar þeir yfirgefa ráðuneyti sínu öðru hvoru megin við næstu helgi, hvort þeir eigi einhvern tímann afturkvæmt. Það er kannski stærri spurning en stundum áður, þegar ráðherrar hafa yfirgefið ráðuneyti.
Þau fengu tækifæri og klúðruðu því
Stjórnarmyndunin, sem væntanlega verður kynnt innan örfárra sólarhringa mun hleypa nýjum krafti í Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk og auka bjartsýni í báðum flokkum um framtíðina og reyndar má finna að það á við um fólk almennt.
Hvar og hvenær missti framkvæmdastjórn ESB jarðsambandið?
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávarútvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðum
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnarmyndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.