Ekki þarf annað en skoða myndbönd, sem birt eru á vefsíðum evrópskra fjölmiðla í dag til þess að sjá hversu alvarlegt ástand hefur ríkt í löndunum við Miðjarðarhaf í gær og eru lesendur Evrópuvaktarinnar hvattir til að skoða þau. Slík myndbönd má t.d. sjá á vefsíðum brezku dagblaðanna The Daily Telegraph og Guardian.
En jafnframt kemur fram í fréttum að norðar í álfunni hafi verið efnt til stuðningsaðgerða við mótmælendur í Suður-Evrópu. Framkvæmdatsjóri samtaka evrópskra verkalýðsfélaga segir að um þjóðfélagslegt neyðarástand sé að ræða í ríkjunum þar.
Í þessu ljósi vekur óneitanlega furðu, að verkalýðsfélögin hér hafi ekki séð nokkra ástæðu til að láta til sín heyra. Vissu þau ekki af þessum mótmælum?
Eða getur verið að forysta ASÍ vilji ekki af þeim vita vegna þess að „þjóðfélagslegt neyðarástand“ í nokkrum evruríkjum passar ekki inn í þá dýrðarmynd af ríki evrunnar, sem ASÍ-forystan hefur reynt að draga upp?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...