Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Andrea Jóhanna færir Dögun nýtt líf


12. desember 2012 klukkan 13:05

Samkvæmt fréttum mbl.is í morgun hefur Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, sem var einn af frambjóðendum til forseta í vor tekið ákvörðun um að bjóða sig fram til Alþingis á vegum Dögunar í þingkosningunum, sem fram fara eftir nokkra mánuði. Þetta þýðir að Dögun fær nýtt líf í pólitíkinni.

Dögun eru samtök, sem að standa Hreyfingin, Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og einhverjir af þeim, sem sæti áttu í stjórnlagaráði.

Þegar saman koma sumir þingmenn Hreyfingarinnar á Alþingi og Andrea Jóhanna er ljóst að til skjalanna er komið á sameiginlegum vettvangi fólk, sem hefur látið mikið til sín taka frá hruni. Andrea kynnti sín málefnasjónarmið rækilega í kosningabaráttunni vegna forsetakosninganna og er líkleg til að ná til fólks.

Þegar jafnframt er haft í huga að Björt framtíð er að styrkjast og Jón Gnarr, borgarstjóri, hefur gefið til kynna að hann íhugi framboð til Alþingis er ljóst að hinir hefðbundu flokkar verða að fara að taka nýju framboðin alvarlega.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS