Það var traustvekjandi hjá Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingar að tala opið um vandamál stjórnarflokkanna vegna stjórnarskrármálsins í Kastljósi í gærkvöldi. Stjórnmálamenn verða ekki menn að minni með því að tala með þeim hætti um ágreiningsmál, sem uppi eru í þeirra röðum.
Hvers vegna skyldu flokkarnir pukrast með ágreiningsmál í eigin röðum? Er ekki sjálfsagt í lýðræðislegu samfélagi að slík mál séu til opinberrar umræðu? Hvað er að því?
Með því að ræða stjórnarskrármálið á þennan hátt er Árni Páll að marka skýr skil á milli sín og fyrrverandi formanns flokksins og það getur ekki annað en orðið til að styrkja flokk hans.
Hið sama má segja um Katrínu Jakobsdóttur. Hún talar með öðrum hætti en fyrrverandi formaður flokks hennar og sumir aðrir þingmenn flokksins um stöðu stjórnarskrármálsins og er ekki hrædd við það.
Að þessu leyti eru þau bæði að slá nýjan tón.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...