Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins um þessa helgi er að finna forvitnilega athugasemd. Þar segir:
„Í síðustu kosningum slapp Samfylkingin ótrúlega vel. Hún átti þó jafnvel ríkari þátt í því en samstarfsflokkurinn hvað síðasta ríkisstjórn tók seint og veiklulega á vandamálum, sem höfðu hrannast upp.“
Lesendur hljóta að stöðva við þessi orð vegna þess að höfundur Reykjavíkurbréfs er augljóslega Davíð Oddsson, sem var formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands á því tímabili, sem um ræðir og hafði þvi sérstaka aðstöðu til þess að fylgjast með því sem gerðist að tjaldabaki..
Tvennt vekur athygli. Höfundur lýsir þeirri skoðun að þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hafi tekið „seint og veiklulega“ á vandamálum, sem hafi „hrannast upp“. Og hins vegar staðhæfir hann að Samfylkingin, samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokks í þeirri ríkisstjórn, sem hér sat 2007-2009 hafi átt mestan þátt í því að ekki var brugðizt við fyrr en í óefni var komið.
Það er mikilvægt að frekari upplýsingar komi fram um þessi mál. Hér á Evrópuvaktinni hefur þeirri skoðun áður verið lýst að tímabært sé að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins opni sig meira og fjalli ítarlegar um þessa atburði alla út frá sínum sjónarhóli.
Hvað sem líður pólitík líðandi stundar er það nauðsynlegt sögunnar vegna.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...