Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Af hverju heldur Árni Páll áfram að berja höfðinu við steininn?


5. apríl 2013 klukkan 10:51
Árni Páll Árnason

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar virðist alveg blýfastur í málflutningi um krónuna og evruna, sem er ekki í nokkrum tengslum við veruleikann ef marka má viðtal við hann í RÚV í gærkvöldi.

Hvernig í ósköpunum getur formaður Samfylkingar haldið því fram að eina björgun Íslendinga sé sú að taka upp evru, þegar eftirfarandi er haft í huga:

1. Samfylkingin hélt því fram 2008, að ef Ísland hefði verið aðili að ESB og haft evruna hefði ekkert bankahrun orðið og þá hefði Ísland haft Seðlabanka Evrópu sem lánveitanda til þrautavara.

Staðreynd er að Kýpur er aðili að ESB og evrunni. Þar hrundu bankarnir, þrátt fyrir evruna og þrátt fyrir að Seðlabanki Evrópu hafi átt að vera lánveitandi til þrautavara.

2. Árni Páll Árnason heldur því fram að skuldavandi heimila á Íslandi byggist á verðtryggðri krónu og óverðtryggðum launum og að líf fólk yrði allt annað í þessum efnum ef hér væri evra með lágum vöxtum.

Staðreynd er að Spánn er aðili að ESB og hefur tekið upp evru. Húsnæðismál á Spáni eru í rúst, skuldavandi heimila er yfirþyrmandi og fjölskyldur eru bornar út á götu í stórum stíl af heimilum sínum, sem bankar þar yfirtaka af mikilli hörku. Ástandið er ekki mikið betra á Írlandi.

3. Árni Páll boðar betri tið með blóm í haga ef evran yrði tekin upp hér.

Staðreynd er að atvinnuleysi í ESB-löndum hefur aldrei verið meira og er yfirgengilegt í evruríkjum að ekki sé talað um atvinnuleysi á meðal ungs fólks. Frá Spáni einu landa fluttu 280 þúsund ungmenni á síðasta ári í leit að vinnu til annarra landa.

Hvernig getur formaður Samfylkingar haldið áfram að berja höfðinu við steininn og halda því fram að evran sé allra meina bót?

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS