„Vandi Sjálfstæðisflokksins er ekki að baki þrátt fyrir fundinn í dag heldur hefur vandanum einfaldlega verið ýtt inn í framtíðina.“
Þetta voru fyrstu orð í fyrstu frétt fréttastofu RÚV í gærkvöld, laugardagskvöldi og höfð eftir stjórnmálafræðingi.
Eru þetta einhver tíðindi? Er „vandi“ stjórnmálaflokka einhvern tíma „að baki“? Væri það ekki eitthvað skrýtið ef „vandinn“ væri „að baki“?
Stjórnmálaflokkar eru lifandi samtök fólks, sem er sammála um viss grundvallaratriði en greinir á um mörg önnur málefni og líka um einstaklinga í forystusveit. Þannig hefur það alltaf verið og þannig verður það alltaf. Það verða alltaf skiptar skoðanir innan stórra flokka, (og reyndar smáflokka líka) bæði um menn og málefni.
Það þarf ekki annað en líta til annarra landa í þeim efnum. Hefur „vandi“ Íhaldsflokkins í Bretlandi einhvern tíma verið „að baki“? Þar eru bullandi átök öllum stundum og hið sama á við um Verkamannaflokkinn.
Hefur „vandi“ danskra jafnaðarmanna einhvern tíma verið „að baki“? Þar eru bullandi átök þessa stundina um formanninn og forsætisráðherrann.
Ef einhvern tíma kemur að því að „vandi“ stjórnmálaflokka í lýðræðisríki sé „að baki“ er það skýr vísbending um að einræði sé komið á.
Hitt er svo annað mál að átök í flokkum, hvort sem er um menn eða málefni geta farið úr böndum og þá uppskera menn eins og þeir hafa sáð til.
Það sem gerðist í Sjálfstæðisflokknum frá fimmtudagskvöldi til laugardagsmorguns, frá sjónvarpssal til fundar í Garðabæ, var að formaður flokksins brauzt út úr herkví með meiri glæsibrag en lengi hefur sést í íslenzkum stjórnmálum.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...