Mánudagurinn 27. júní 2022

Hvers vegna á Ísland ekki aðild að fundinum í Washington um fiskveiðar á Norðurslóðum?


20. apríl 2013 klukkan 08:48
Hvíti hluti myndarinnar sýnir ísbreiðuna í ágúst 2012. Strikið sýnir meðalyfirborð ísbreiðunnar undanfarna áratugi.

Eftir rúma viku, eða 29. apríl n.k. verður haldinn fundur fimm ríkja í Washington um fiskveiðar á Norðurslóðum. Þau ríki, sem eiga fulltrúa á þessum fundi eru að sögn Barents Observer: Noregur, Kanada, Danmörk, Bandaríkin og Rússland. Markmið fundarins er að ræða fiskveiðar á þeim hafsvæðum norður af Íslandi sem opnast vegna hlýnunar sjávar og nauðsyn þess að hafréttarreglur gildi um þetta svæði svo og að þar fari fram vísindalegar rannsóknir áður en veiðar hefjist, eins og fram kom í frétt Evrópuvaktarinnar í gær.

Hvernig stendur á því að Ísland á ekki fulltrúa á þessum fundi? Auðvitað er ekki hægt að útiloka að það sé ranghermi í frétt vefmiðilsins og að Ísland muni eiga aðild að fundinum. Evrópuvaktin hefur sent fyrispurn til utanríkisráðuneytisins um málið og verður svar ráðuneytisins birt þegar það berst.

En ef gengið er út frá því að þessi frétt sé rétt vaknar sú spurning hvernig í ósköpunum stendur á þvi að við eigum ekki fulltrúa á þessum fundi?

Við eigum mikilla hagsmuna að gæta og þess vegna illskiljanlegt að fundur skuli haldinn um þetta málefni án þess að Ísland eigi þar fulltrúa.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS