Eftir þingkosningarnar 2009 datt engum í hug að nefna þann möguleika að Sjálfstæðisflokkurinn yrði aðili að nýrri ríkisstjórn. Atkvæðatap flokksins og forysta hans í þeirri ríkisstjórn, sem sat í hruninu gerði það að verkum að slíkt var óhugsandi. Sú ríkisstjórn hefði ekki notið nægilegs trausts.
Nú hefjast formlegar stjórnarmyndunarviðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í dag og kemur engum á óvart. Framsóknarflokkurinn vann mikinn sigur og endurreisn Sjálfstæðisflokksins er hafin, hann er á ný stærsti stjórnmálaflokkur þjóðarinnar.
Hins vegar biðu báðir stjórnarflokkarnir, Samfylkingin og VG afhroð og Samfylkingin fóru mun verr út úr kosningunum en VG. Augljóst er að nýr formaður VG bjargaði því sem bjargað varð en það verkefni var og er flóknara fyrir nýjan formann Samfylkingar.
Þrátt fyrir það að stjórnarflokkarnir hafi báðir fengið yfirþyrmandi vantraust í kosningunum talar Ögmundur Jónasson, fráfarandi innanríkisráðherra (skv. fréttum mbl.is) á þann veg að sjálfsagt sé að nú myndi Framsóknarflokkurinn „félagshyggjustjórn“ til vinstri með fráfarandi stjórnarflokkum.
Hvernig getur nokkrum manni dottið í hug að þeir tveir flokkar sem mesta útreið fengu í kosningunum eigi að setjast í nýja ríkisstjórn?
Það eru ekki meiri rök fyrir því en hefðu verið fyrir aðild Sjálfstæðisflokksins að ríkisstjórn 2009.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...