Það hallar undan fæti hjá Framsóknarmönnum í skoðanakönnunum. Það er ósköp skiljanlegt.
Þeir sköpuðu miklar væntingar hjá fólki með kosningabaráttu sinni.
Síðan hefur ekkert gerzt nema samþykkt Alþingis á þingsályktunartillögu um þau verkefni, sem framundan eru vegna skuldavanda heimila.
Enn sem komið er hafa orðin ein verið látin duga.
Þess vegna tapar Framsókn fylgi í könnunum. Fólk veltir því fyrir sér hvort minna verði um efndir en vonir stóðu til.
Vilji Framsóknarmenn snúa þeirri þróun við þurfa þeir að láta verkin tala strax með einhverjum þeim hætti að fólk fái á ný trú á að þeir muni standa við gefin fyrirheit.
En svo má auðvitað vel vera að forystumenn Framsóknarflokksins ætli að bíta á jaxlinn, láta minnkandi fylgi í skoðanakönnunum yfir sig ganga - og standa svo uppi sigri hrósandi í lok ársins með vísan til verka sinna, sem þá verði komin í ljós.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...