Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

VG greip ekki tækifærið-Hvað gerir Bezti flokkur/Björt Framtíð?


23. október 2013 klukkan 08:33
Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr

Þótt töluverður mundur sé á milli kannana Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og MMR fer þó ekki á milli mála, að það tækifæri sem Vinstri grænir augljóslega höfðu í kjölfar kosninga til þess að verða leiðandi afl á vinstri væng stjórnmálanna hefur gengið þeim úr greipum.

Þeir gripu ekki það tækifæri, sem blasti við.

Hvers vegna ekki?

Kannski af því að þeir vilji ekki verða slíkt leiðandi afl.

Stundum vill fólk vera í litlum flokki, sem þarf ekki að gera þær málamiðlanir sem stærri flokkar standa frammi fyrir.

En hver sem ástæðan er fyrir því að VG greip ekki tækifærið er ljóst að afleiðingin er sú að Samfylkingin kann að vera að ná fótfestu á ný.

Það fer þó eftir því hver framvindan verður í tilveru Bezta flokksins/Bjartrar framtíðar. Sú stjórnmálasamsteypa gæti tekið forystuna úr höndum Samfylkingar ef horft er til stöðu Bezta flokksins í Reykjavík.

Einhvers staðar verða vinstri menn að eiga heima.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS