Mánudagurinn 18. janúar 2021

Hætta aðildarsinnar sér út í umræður um þróun ESB?


1. febrúar 2014 klukkan 09:57

Sumir greinendur hér segja að aðildarsinnar að ESB sæki nú í sig veðrið og hafi sig meira í frammi en áður. Það má vel vera enda þarf ekki mikið til. Þeir voru horfnir og höfðu reyndar skilið Þorstein Pálsson einan eftir á sviðinu.

En hvað sem því líður er ljóst að þeir hafa engan áhuga á að ræða þróun mála innan Evrópusambandsins undanfarin ár. Þeir halda sig við málflutning fyrri ára og láta eins og ekkert hafi gerzt innan ESB frá því að aðildarumsóknin var lögð fram.

Vonandi verður breyting á því alveg á næstunni, þegar skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ verður lögð fram um stöðu viðræðna og þróun ESB. Það er æskilegt að almennar umræður fari fram um það sem hefur verið að gerast innan ESB, vandamálin, sem upp hafa komið á evrusvæðinu, afleiðingar hins sameiginlega gjaldmiðils fyrir mörg aðildarríki hans, hið gífurlega atvinnuleysi, sem lítil breyting hefur orðið á, hlutskipti unga fólksins, sem er ömurlegt ekki sízt í Miðjarðarhafslöndunum, þar sem atvinnuleysi meðal ungmenna er sums staðar yfir 50% og jafnvel yfir 60%.

Það er líka æskilegt að ræða þann ágreining sem upp er komin í Evrópusambandinu öllu um hvert skuli stefna, formfastara og miðstýrðara ríkjabandalag eða ekki. Á að halda fast við frjálsa för fólks eða á að setja upp einhverjar hindranir?.

Það verður fróðlegt að kynnast sjónarmiðum aðildarsinna um öll þessi mál - ef þeir þá hætta sér út í þær viðræður.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS