Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Pólitískt uppnám, órói og óvissa


21. mars 2014 klukkan 10:16

Það er uppnám í pólitíkinni á mörgum vígstöðvum. Verkfall framhaldsskólakennara á eftir að verða ríkisstjórninni afar erfitt. Þegar frá líður verður það nánast óbærilegt fyrir nemendur og heimili.

Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg.

Grunnhugsun Iluga Gunnarsson,menntamálaráðherra er skynsamleg en honum hefur ekki tekizt fram að þessu að koma því til skila til almennings hvað í henni felst. Það er pólitískt nauðsynlegt fyrir ráðherrann að útskýra þær hugmyndir betur.

Það verður órói í kringum Ríkisútvarpið þar til nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir og þeim mun meiri, sem sú málsmeðferð tekur lengri tíma.

Kosningabaráttan er að hefjast og stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins spyrja hvar kosningastefnuskrá flokksins sé, eins og sjá má ef Morgunblaðið í dag er vel lesið.

Það er óljóst hvernig ríkisstjórnin ætlar að afgreiða þingsályktunartillögu sína um ESB. Þingforseti talar á þann veg að sumarþing sé ekki í vændum.

Andstæðingar aðildar að ESB sem jafnframt eru öflugustu stuðningsmenn núverandi ríkisstjórnar bíða og fylgjast með framvindu mála.

Telji þeir að ríkisstjórnin sé að bregðast verður það henni erfitt.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS