-og sýnir að Björt Framtíð er annað og meira en fylgihnöttur Samfylkingar
Samstarf Sjálfstæðisflokks og Bjartrar Framtíðar í bæjarstjórnum Kópavogs og Hafnarfjarðar breytir og breikkar ímynd Sjálfstæðisflokksins, sem seinni árin hefur ekki átt margra kosta völ í samstarfi við aðra flokka en Framsóknarflokkinn og sýnir jafnframt að Björt Framtíð er ekki bara sá fylgihnöttur Samfylkingar, sem hingað til hefur verið talið.
Sú áherzla, sem flokkarnir tveir leggja á opna stjórnsýslu og aðild íbúa að ákvörðunum í Kópavogi vekur jafnframt vonir um að innan Sjálfstlæðisflokksins sé að verða til stuðningur við að flokkurinn taki þau stefnumál upp og geri að sínum.
Ekki hefur verið sagt frá efni málefnasamnings flokkanna í Hafnarfirði en ekki ólíklegt að sömu áherzluatriði eigi eftir að birtast þar.
Þessi framvinda mála í þessum tveimur bæjarfélögum getur átt eftir að hafa áhrif á aðra, þar á meðal á málefnaáherzlur Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur.
Margt bendir því til að forystumenn Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og Hafnarfirði, þau Ármann Kr. Ólafsson og Rósa Guðbjartsdóttir séu að brjóta blað.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...