Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Valtað yfir Cameron í ESB - hvað um tillitið til brýnna þjóðar­hagsmuna?


22. júní 2014 klukkan 13:36
Angela Merkel og David Cameron

Til að milda afstöðu Íslendinga til aðildarviðræðna við ESB og að skynsamlegt sé að leiða viðræðurnar til lykta með samningi segja aðildar- og viðræðusinnar gjarnan að þess séu engin dæmi að gengið sé gegn brýnum hagsmunum aðildarríkis ESB og hið sama gildi að sjálfsögðu um umsóknarríki, brýnir hagsmunir þess séu að sjálfsögðu hafðir í heiðri.

Þessi afstaða ESB hefur meðal annars birst íslenskum stjórnvöldum á þann veg að ESB neitar að sýna á spil sín í sjávarútvegsmálum nema Íslendingar slái af kröfum sínum í þeim málaflokki.

Þá má velta fyrir sér hvort frétt sem birtist á mbl.is sunnudaginn 22. júní bendi til þess að tekið sé tillit til brýnna hagsmuna ríkja og leitað málamiðlanna séu þeir taldir í húfi.

Þar segir að David Cameron, forsætisráðherra Breta, ætli að neyða leiðtoga annarra ESB-ríkja til að kjósa um hver verði forset framkvæmdastjórnar ESB næstu fimm árinn. Cameron leggist eindregið gegn því að Jean-Claude Juncker fái embættið og ætli að „berjast gegn útnefningu hans til síðustu stundar“. Flest bendi til að Juncker verði valinn enda njóti hann stuðnings bæði frá hægri og vinstri.

Hvernig fellur þetta að kenningunni um að aldrei sé valtað yfir ríki innan ESB?

Bj. Bj.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS