Aðhaldsstefnan í ríkisfjármálum aðildarríkja evrunnar hefur verið knúin fram af Þjóðverjum gegn máttvana andmælum annarra aðildarríkjan hins sameiginlega gjaldmiðils. Hún hefur hins vegar orðið áhrifamönnum í Suður-Evrópu hvatning til þess að ýta undir bandalag Miðjarðarhafsríkjanna undir forystu Frakka gegn Þjóðverjum. Nú er það óformlega bandalag að birtast undir forystu Frakka og Ítala.
Í gær líkti Montebourg, efnahagsráðherra Frakka, aðhaldspólitíkinni við „Evrópusýki“ og sagði að hún væri siðferðilega rétt en efnahagslega röng. Ráðherrann kenndi þessum sjúkdómi um skort á hagvexti í Frakklandi. Hann vill lengri tíma til að lækka skuldir Frakka og hvetur Seðlabanka Evrópu til að ýta undir útflutning aðildarríkjanna.
Þetta er athyglisverð lýsing á örlögum evruríkjanna.
Ráðherrann franski er að lýsa því að eins konar evruveira sé á ferð sem leiði af sér Evrópusýki.
Það þarf kannski engan að undra að Samfylkingin fari hægt og hljótt með ESB-stefnu sína um þessar mundir.
Frá þessum ummælum franska ráðherrans segir á euobserver.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...