Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Hefur brezki mann­fræðingurinn rétt fyrir sér um fjárhagsstöðu Íslands?


22. júlí 2014 klukkan 08:25

Gillian Tett, sem er einn helzti sérfræðingur Financial Times í alþjóðlegum fjármálum var hér á ferð fyrir skömmu.

Hún hefur farið viðurkenningarorðum um ýmislegt, sem hér hafi verið gert frá hruni en telur þó að ekki sé allt sem sýnist.

Þótt opinberar skuldir séu „aðeins“ 84% af vergri landsframleiðslu að mati AGS sé heildarhlutfall skulda 221% af vlf. ef skuldbindingar bankakerfisins séu teknar með og á þá væntanlega við skuldbindingar hinna föllnu banka.

Gillian Tett segir ólíklegt að Ísland geti staðið undir þeim skuldbindingum að fullu.

Gjaldeyrishöftin geri stjórnvöldum hins vegar kleift að hafa stjórn á stöðunni.

Þetta er önnur framsetning en fram kemur í umræðum innanlands, sem einkennast af bjartsýni um það að hið versta sé afstaðið og að styttist í að gjaldeyrishöft verði afnumin.

Getur verið að þessi brezki mannfræðingur hafi réttar fyrir sér en sérfræðingaskarinn á Íslandi?

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS