Ýfingar á milli Rússa og annarra Evrópuríkja eru að magnast og eru byrjaðar að sjást í samskiptum við Norðurlönd.
Aleksey Pushkov, formaður utanríkismálanefndar rússaneska þingsins - Dúmunnar - segir í dag í samtali við Itar-Tass fréttastofuna rússnesku að Finnland og Svíþjóð verði ekki lengur hlutlaus ríki eftir að þau hafi undirritað nýjan samstarfssamning við Atlantshafsbandalagið. Næsta rökrétta skref í framhaldi af því segir Pushkov er að ríkin tvö gerist aðilar að bandalaginu.
Þessi undirritun fer fram á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Wales í næstu viku.
Finnskir ráðamenn hafa lagt mikla áherzlu á að í undirritun þessa samkomulags felist engin bindandi ráðagerð um að Finnar gerist aðilar að NATÓ.
Rétt er að rifja upp að upphafið að núverandi ástandi í Úkraínu var að Rússar mótmæltu fyrirhugaðri undirskrift samninga á milli ESB og Úkraínu, sem ekkert varð af í kjölfar þeirra mótmæla.
Nú verður fróðlegt að sjá hvort „þrýstingur“ eykst að austan á Finna á næstu dögum, vikum og mánuðum.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...