Hvernig lítur Evrópa út,þegar horft er til hennar frá Grikklandi, þar sem evrukreppan hófst?
Svona skv. grein eftir grískan blaðamann Nikos Xydakis á ekathimerini, gríska vefmiðlinum:
Grikkland er staðnað og þjáist af öryggisleysi.
Evrópa er líka haldin öryggisleysi en á hreyfingu.
Frakkar haltra áfram.
Ítalir reyna að losna úr spennitreyju aðhaldsstefnu og leitast um leið við að hefta straum flóttamanna til landsins.
ESB heldur í sér andanum af ótta við úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Skotlandi.
Segi Skotar já þýðir það sundrun brezka konungsdæmisins og um leið vakna aðskilnaðarhreyfingar annars staðar til lífsins.
Eftir standa Grikkir með óleyst vandamál, sem eru ekki lengur fyrsta mál á dagskrá ESB.
Þrátt fyrir þetta hikar ríkisstjórn á Íslandi við að draga aðildarumsóknina að ESB til baka.
Og á Íslandi eru enn til stjórnmálaflokkar, sem berjast fyrir aðild að þeirri hörmungarmynd, sem Evrópusambandið er orðið!
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...