Ráðamenn Úkraínu og ESB hafa staðfest samstarfssamning sín á milli. Framkvæmd samningsins frestast þó enn um sinn vegna þrýstings frá Rússum. Samningurinn var fullgiltur og undirritaður samtímis þriðjudaginn 16. september í Kænugarði og Strassborg.
Undir lok nóvember 2013 varð höfnun þáverandi stjórnar Úkraínu á samningnum kveikjan að mótmælunum í Kænugarði sem leiddu til stjórnarskipta og vopnaðra átaka við Rússa.
Þing Úkraínu og ESB-þingið áttu aðild að lokaafgreiðslu samningsins og afgreiddu málið samtímis.
Í ESB-þinginu studdu 535 þingmenn samninginn en 127 voru á móti honum, 35 sátu hjá. Samningurinn var samþykktur einum rómi af 355 þingmönnum í Kænugarði.
Petro Porosjenko, forseti Úkraínu, sagði:
„Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt það jafndýru verði að verða evrópsk. Vinsamlega segið mér hver mun nokkru sinni þora að loka dyrum Evrópu á Úkraínumenn eftir þetta? Hver verður andvígur hugsanlegri aðild að ESB? Í dag tökum við fyrsta markvissa skrefið í átt til hennar.“
Í síðustu viku var samið við Rússa um að fresta framkvæmd viðskiptahluta samningsins til ársins 2016. Ráðamenn í Moskvu höfðu hótað að beita stjórnina í Kænugarði auknu harðræði í viðskiptum ef samningurinn tæki gildi 1. nóvember nk. eins og ætlað var.
Bj. Bj.
Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...