Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Rússland: Pútín íhugar að kippa netinu úr sambandi og loka veraldarvefnum


20. september 2014 klukkan 13:40

Talsmaður Vladimirs Pútíns Rússlandsforseta sagði fréttamanni AFP föstudaginn 19. september að stjórnin í Moskvu velti fyrir sér að aftengja Rússland frá veraldarvefnum og netinu.

Vedomosti, virt viðskiptablað í Moskvu, segir að Pútín hafi boðað öryggisráð Rússlands til fundar mánudaginn 22. september og þar verði rætt hvernig forða megi Rússum frá hættum vegna Internetsins.

Hugmyndir eru um að vefurinn verði tekinn úr sambandi og netinu lokað á tímum mikilla mótmæla eða hernaðarátaka.

Netið er nú eina fjarskipta- og miðlunarleið sem Rússar geta notað án íhlutunar Kremlverja. Hugsanlegt er talið að þeir rökstyðji ákvörðun sína um beina stjórn á netinu og tengingu þess með vísan til hættu á refsiagerðum Vesturlanda gegn netnotendum.

Bent er á að í Íran og á Kúbu hafi stjórnvöld gripið til ráðstafana til að hafa hemil á því sem berst inn á veraldarvefinn frá Vesturlöndum.

Pútín hefur lýst netinu sem „CIA-verkefni“. Um 70 milljónir Rússa, helmingur þjóðarinnar, nota netið.

Bj. Bj.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS