Laugardagurinn 27. febrúar 2021

Miliband boðar 16 ára kosningaaldur


23. september 2014 klukkan 14:33

Ed Miliband, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, sagði í ræðu á landsfundi flokksins í Manchester þriðjudaginn 23. september að flokkurinn ætti að berjast fyrir lækkun kosningaaldurs í 16 ár úr 18 árum.

Í þjóðaraatkvæðagreiðslunni í Skotlandi hinn 18. september var kosningaaldurinn 16 ár.

Ed Miliband

Alex Salmond, fráfarandi formaður Skoska þjóðernisflokksins, hefur einnig lýst vilja til að berjast fyrir að kosningaaldurinn verði almennt lækkaður í 16 ár.

Miliband lýsti þeirri eindregnu skoðun að Bretland ætti að skipa sér innan Evrópusambandsins.

Hann sagði að David Cameron forsætisráðherra lægi ekki andvaka á nóttunni af áhyggjum yfir stöðu Englands innan Sameinaða konungdæmisins. Hann gæti ekki sofið af ótta við UKIP, Flokki sjálfstæðissinna í Bretlandi, sem vilja Bretland úr ESB.

Eina örugga leiðin til að tryggja aðild Breta að ESB væri að kjósa Verkamannaflokkinn til valda í Bretlandi.

Bj. Bj.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS