Sýnt hefur verið fram á í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um ESB-umsóknina og viðræðurnar á grundvelli hennar að sótt var um ESB-aðild á vitlausum forsendum.
Umsóknarmenn töldu að Ísland fengi sömu stöðu sem umsóknarríki og EFTA-löndin höfðu í upphafi tíunda áratugarins.
Á þessum grunni reistu þeir yfirlýsingar sínar um að aðildarferlið tæki aðeins allt að 18 mánuðum.
Á þessum grunni höfnuðu þeir öllum ábendingum um að þetta væru ekki samningaviðræður heldur aðlögunarviðræður.
Snemma árs 2011 rak íslenska viðræðunefndin sig á að ESB neitaði að afhenda rýniskýrslu um sjávarútvegsmál nema fallið yrði frá skilyrðum sem alþingi hafði sett í sjávarútvegsmálum.
Í janúar 2013 setti umsóknarráðherrann viðræðurnar við ESB á ís í von um að þær spilltu ekki fylgi flokks hans, Samfylkingarinnar, í þingkosningunum í apríl 2013. Allt kom fyrir ekki, þegar tölur bárust á kosninganótt sagði ráðherrann að þær boðuðu „hamfarir“ fyrir flokk sinn.
Í ljósi þessarar hörmungarsögu verður enn óskiljanlegra en ella að ríkisstjórn flokka sem eru andvígir aðild að ESB skuli ekki afturkalla ESB-aðildarumsóknina.
Þrá ríkisstjórnarflokkarnir að kynnast hamförum Samfylkingarinnar?
Bj. Bj.
Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...