Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Cameron varar við öðru heimshruni


17. nóvember 2014 klukkan 17:18

David Cameron, forsætisráðherra Breta, segir að „rauð viðvörunarljós blikki á stjórnborði heimsbúskaparins“ og ef til vill sé annað heimshrun í efnahagsmálum á næsta leiti. Forsætisráðherrann sagði þetta í sama mund og leiðtogar G20-ríkjanna halda heim á leið frá Ástralíu þar sem þeir lögðu mat á stöðu mála. Telur Cameron að nú séu ýmis teikn á lofti sem minni á það sem við blasti fyrir heimshrunið fyrir sex árum.

David Cameron

Forsætisráðherrann segir að „hættuleg teikn um óstöðugleika og óvissu“ séu á lofti samhliða pólitískum, mannúðlegum og efnahagslegum vandamálum um heim allans sem kunni að grafa undan efnahagsbata í Bretlandi.

Cameron segir í grein í The Guardian mánudaginn 17. nóvember að efnahagslægðin á evru-svæðinu hefði áhrif á útflutning Breta og þar með einnig framleiðslumagn í landinu. Hann segir:

„Evru-svæðið vegur salt á barmi þriðja samdráttarskeiðsins, atvinnuleysi er mikið, hagvöxtur minnkar og veruleg hætta er á verðhjöðnun.

Það hægir á vexti í nýmarkaðslöndunum en þau knúðu hjól efnahagslífsins á fyrstu stigum afturbatans. Þrátt fyrir að vel hafi miðað í Bali [viðskiptaviðræður árið 2012] er allt strandað núna, ebólu-faraldurinn, átökin í Mið-Austurlöndum og ólögmæt framganga Rússa í Úkraínu, allt stuðlar þetta að óstöðugleika og óvissu.“

Bj. Bj.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS