Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Nýtt þjóðernissinnað skoskt dagblað - UKIP segir það áróðurssnepil í anda fasista


30. nóvember 2014 klukkan 13:20

Nú á tímum netmiðla er ekki algengt að ný dagblöð sjái dagsins ljós. Það gerðist hins vegar mánudaginn 24. nóvember þegar útgáfufyrirtækið Newsquest hóf útgáfu á blaðinu The National, fyrsta skoska dagblaðinu til stuðnings sjálfstæði landsins. Ákveðið var að hefja útgáfuna eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 18. september 2014 þar sem sjálfstæði var hafnað. The National verður systurblað The Herald og The Sunday Herald.

Áform um útgáfuna voru fyrst kynnt á flokksþingi SNP, skoskra þjóðernissinna. Útgefendur segja að blaðið sé ekki í neinum tengslum við flokkinn. Fullyrðing um það efni er dregin í efa af andstæðingum flokksins og sjálfstæðis Skota.

Hörðust hafa viðbrögðin verið hjá Misty Thackeray, formanni UKIP, flokks breskra sjálfstæðissinna í Skotlandi. Hann sagði að blaðið væri þrællunduð málpípa SNP:

„Hættan er sú að skoska þjóðernishreyfingin snúi aftur til fasískra róta sinna frá fjórða áratugnum.

Fyrst höfum við kynnst töluþrjótum og götuhrottum sem beta ógnunum í baráttunni fyrir sjálfstæði, síðan sjáum við [Nicolu] Sturgeon [nýkjörinn formann SNP] á hópfundum sem minna á Nürnberg og nú þessa McPrövdu, áróðurssnepil.

Skotar þarfnast ekki stjórnmála óendalegra þjóðaratkvæðagreiðslna, heldur hins að allir sætti sig við að meirihluti Skota hefur samþykkt að vera um aldur og ævi í konungssambandinu, og að nei þýðir nei.“

Richard Walker, ritstjóri The National og The Sunday Herald, brást við á þennan hátt:

„Þarna sýnir UKIP sitt rétta andlit. Þeir þola ekkert sem er andstætt skoðun þeirra og hafna því sem fasisma.

Þeir verða að bíta í það súra epli að við munum halda áfram að sinna því verkefni að afhjúpa umburðarleysið í kjarna flokksins.“

Bj. Bj.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS